Setjið (ávallt) smjörið á kalda pönnu. Hrærið í á meðan það bráðnar og bíðið þar til froðan hjaðnar. Stráið örlitlu salti á hann og látið krauma í 1 1/2 mín. á hvorri hlið (3 mín. í allt). Takið humarinn af pönnunni og stráið örlitlu salti yfir hann ef hann er skelhreinsaður en berið salt fram með humri í skel. Berið humarinn fram með ristuðu brauði og soðinu af pönnunni eða notið það í sósu.
Sósa:
Þegar búið er að smjörsteikja humarinn er rjómanum hellt út á pönnuna. Bætið kryddinu út í og sjóðið í 5-10 mín. Berið sósuna fram heita.