Aðferð:
Leggið matarlímsblöðin í bleyti í kalt vatn. Bræðið kryddsmjörið í potti og blandið hveiti saman við. Hrærið vel saman, hellið mjólkinni saman við og látið sjóða við vægan hita í 4-5 mínútur gætið að því að hræra vel í allan tímann. Bætið í rifnum paprikuosti og óðalsosti ásamt cayenne pipar. Hrærið vel saman. Kreistið vatnið af matarlíminu og bætið því í blönduna, setjið í form svo blandan nái u.þ.b. 2,5-3,0 cm hæð. Kælið vel og að lokum skerið í u.þ.b. þumalstóra bita.
Myljið ritzkexið saman við brauðraspinn og blandið vel saman. Veltið upp úr hveiti, eggi og í brauðrasp, svo aftur í egg og brauðrasp.
Steikið í heitri olíu þar til bitarnir eru orðnir gullinbrúnir. Gefið með góðu salati og salsasósu.
Hentar vel sem áramóta og hlaðborðsréttur.