Aðferð:
Skerið brauðsneiðarnar í teninga og setjið í eldfast mót. Blandið saman grískri jógúrt, matreiðslurjóma, eggjum, léttosti, piparosti og skinku. Kryddið með salti og svörtum pipar. Hellið blöndunni yfir brauðteningana og hrærið vel saman. Setjið gratínostinn yfir og bakið við 175°C í 20-25 mínútur.
Þessa fyllingu er líka hægt að setja í tartalettur.