Ostauppskriftir - Brauð, skyrtertur, forréttir, smáréttir og pizzur | Ostur.is
Gefðu einkunn (0 eink.)
Snúningar
Deig: Velgið mjólkina í 37°C og bætið gerinu út í. Bræðið smjörið. Blandið sykri, salti og hluta af hveitinu út í vökvann og hrærið vel. Blandið bræddu smjörinu út í og síðan því sem eftir er af hveitinu. Látið deigið lyfta sér í u.þ.b. 40 mín. í skál, breiðið þurran klút yfir. Hnoðið deigið, bætið hveiti út í eftir þörfum. Deigið á að vera mjúkt og sleppa vel hendi.
Fylling: Fletjið deigið út í köku 40x60 sm. Penslið með smjöri og stráið kardimommum og sykri yfir. Brjótið kökuna inn á við frá báðum langhliðum þannig að kakan verði þreföld. Skerið lengjuna í 2 sm breiðar ræmur. Skerið upp í ræmurnar en hafið heilt á öðrum endanum. Snúið upp á lengjuna þannig að hún líkist fléttu. Látið lyfta sér í u.þ.b. 30 mín. Penslið með eggjablöndu og stráið perlusykri og möndluflögum yfir. Bakið við 230°C í miðjum ofni í 8-10 mín.