Aðferð:
Klæðið mót eða box, u.þ.b. 21 x 21 cm að stærð að innan með smjörpappír. Þrýstið pappírnum vel inn í hornin. Hitið rjómann í potti og brytjið súkkulaðið út í. Hrærið í þar til súkkulaðið er bráðið. Takið pottinn af hitanum og bætið sykurpúðum og vanilludropum út í. Hrærið þar til sykurpúðarnir hafa bráðnað og samlagast súkkulaðinu. Hellið blöndunni í mótið og stráið hnetum og apríkósum strax yfir. Látið kólna alveg í kæli. Stráið e.t.v. flórsykri eða kakói yfir karamelluna og skerið hana svo í bita.