Aðferð:
Hitið ofninn í 180°C, blandið saman í höndunum hveiti, lyftidufti, salti og smjöri. Velgið saman mjólk og ólífuolíu og blandið saman við mjölblönduna. Bætið við ólífum, sólþurrkuðum tómötum, rifinni skinku, kotasælunni og ¾ af ostinum.
Setjið í muffinsform og stráið restinni af ostinum yfir.
Bakið við 180°C í 20-25 mín
Ath að hægt er að baka minni muffur og nota sem smárétt
Berið fram volgt með góðu salati