Hitið ofninn í 175°C.
Myljið saman smjör og hveiti.
Hnoðið síðan allt saman sem í deigið á að fara.
Hnoðið hratt saman.
Mótið sívalninga u.þ.b. 2-2 1/2 cm í þvermál.
Skerið í sneiðar og raðið á bökunarplötu klædda bökunarpappír.
Bakið í u.þ.b. 6-10 mín..
Hrærið allt saman sem í kremið á að fara.
Leggið kökurnar saman tvær og tvær með kremi á milli.
Búið til glassúr með því að hræra saman flór- sykri og kaffi.
Penslið yfir efri kökuna.
Kælið.
Geymið í vel lokuðum plastpoka á köldum stað eða í frosti.