50 g pressuger = 1 msk þurrger Hrærið saman rjómaosti og sýrðum rjóma, bætið gerinu út í þá salti og olíu.
Bætið u.þ.b. helmingnum af mjölinu út í.
Breiðið klút yfir skálina látið hefast í u.þ.b. 1 klst.
Bætið meira mjöli í deigið , ekki öllu þar sem ekki er víst að þörf sé á því öllu.
Skiptið deiginu í tvennt.
Fletjið hvorn hluta út í ferkantaða ílanga köku.
Saxið olívurnar og dreifið þeim yfir, raðið eggja- bátunum eftir annarri langhliðinni sem að ykkur snýr á hvorri köku.
Stráið oregano yfir.
Rúllið deiginu upp frá langhliðinni sem að ykkur snýr.
Mótið hring eða kringlu.
Leggið á smurða bökunarplötu eða plötu klædda bökunarpappír.
Breiðið klút yfir og látið hefast í u.þ.b. 30 mín.
Stráið grófu salti yfir.
Bakið við 200°C. í u.þ.b. 30 mín.
Berið smjör og salat með.