sundurslegið egg til að pensla með
möndluspænir og /eða perlusykur til skrauts
30 lítil form, t.d. álform
Myljið gerið í skál og hellið mjólkinni yfir, hrærið þar til gerið hefur jafnast út.
Blandið 4 dl. af hveiti saman við. Breiðið klút yfir skálina og látið hefast á
hlýjum stað í u.þ.b. 30 mín.
Hrærið smjöri, sykri og eggjum saman við og að lokum hveiti en ekki öllu í
einu þar sem ekki er víst að þörf sé á því.
Hafið deigið það blautt að það rétt losni frá borðinu.
Blandið saman öllu sem á að fara í fyllinguna. Setjið örlítið af fyllingu í
botninn á hverju móti. Hnoðið deigið á hveitistráðu borði. Skiptið deiginu í tvennt.
Mótið hlutana í lengjur og skiptið hverri lengju í 15 bita. Mótið bollur úr bitunum
og setjið bollu í hvert álform. Þrýstið því sem eftir er af fyllingunni niður í bollurnar,
notið tvær teskeiðar eða klippið rauf með skærum og setjið fyllinguna í.
Breiðið klút yfir og látið hefast á hlýjum stað í u.þ.b. 45 mín.
Hitið ofninn í 250°C.
Penslið bollurnar með eggi, stráið sykri og hnetuspónunum yfir.
Bakið í u.þ.b. 8 mín.