Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir
Uppskriftir

Gefðu einkunn
(0 eink.)

Senda inn uppskrift

Laukbrauð


Lauk fylling:








Deig:











Hráefni fyrir  

sem fer í skúffu og ofan á deigið olía og nýmalaður pipar borið fram með. Skerið laukinn í þunnar sneiðar. Látið hann liggja í köldu vatni í 30 mín. Látið leka vel a lauknum og látið hann krauma í olíu og smjöri í u.þ.b. 10 mín. Hrærið í öðru hverju. Hellið 1 bolla af hvítvíni út í ásamt salti, pipar og oregano. Látið malla í 40 mín., bætið meira víni í eftir því sem þarf, ekki er víst að þörf sé á því öllu. Kælið laukinn í 30 mín. Leysið gerið upp í 1 1/2 bolla af volgu vatni. Hrærið saman 2 1/2 bolla af hveiti, salti og gerblöndu. Blandið vel. Stráið hveiti yfir deigið. Breiðið klút yfir skálina og látið hefast á hlýjum stað í u.þ.b. 1 klst. Setjið 3 1/2 bolla af hveiti á borð. Gerið holu í miðjuna, setjið þar í vatn, olíu og hefið deigið. Hnoðið saman með hröðum handtökum. Penslið 1 ofnskúffu eða 2 minni mjög vel með 4 msk.af olíu. Fletjið deigið út og setjið í ofnskúffuna. Penslið 3 msk. af olíu yfir deigið. Pikkið deigið með gaffli. Strekkið plastþynnu yfir skúffuna og látið hefast á hlýjum stað í u.þ.b. 1 klst. Hitið ofninn í 190°C. Bakið brauðið í 20 mín. Látið leka af lauknum og breiðið hann yfir brauðið. Bakið áfram í 20 mín. Berið fram heitt í bitum eða sneiðum. Gott er að strá grófu salti eða öðru kryddi ofan á í stað lauks.