Blandið gerinu saman við 1 bolla af hveitinu.
Hitið saman mjólk, salt og 2 msk.
smjör þar til smjörið er bráðið.
Setjið volga mjólkurblönduna saman við hveiti/ger blönduna ásamt 1/2 bolla af osti og 1 eggi.
Hrærið 1/2 bolla af hveiti saman við.
Breiðið klút yfir skálina og látið deigið hefast á hlýjum stað í 1 1/2 klst.
Setjið nú smjörið á pönnu og látið hvítlaukinn krauma þar í smá stund.
Hrærið tarragoni og steinselju saman við og kælið lítið eitt.
Hnoðið deigið og bætið hveiti í sem þarf til að gera það viðráðanlegt.
Fletjið það út í 50x24 cm ferhyrning og penslið með hvítlaukssmjörinu.
Dreifið 1/2 bolla af osti yfir og rúllið deiginu upp frá langhliðinni.
Kljúfið nú rúlluna með beittum hníf eftir endilöngu.
Setjið lengjurnar hlið við hlið með skurðflötinn upp.
Penslið enda annarrar með vatni og þrýstið að enda hinnar.
Vefjið lengjunum saman með skurðflötinn upp.
Leggið í hring á plötu klædda bökunarpappír, og þrýstið endunum vel saman.
Breiðið klút yfir vafninginn og látið hefast á hlýjum stað í 1 klst.
Bakið í 175°C í 25 mín.
Penslið með sundurslegnu egginu og bakið áfram í 5-10 mín.
Kælið smástund og berið vafninginn fram volgan.
Ostavafninginn má frysta.
Látið hann þá þiðna við stofuhita, penslið með vatni og vefjið álþynnu utan um.
Hitið í 10-15 mín., við 160°C.