Ostauppskriftir - Brauð, skyrtertur, forréttir, smáréttir og pizzur | Ostur.is
Gefðu einkunn (0 eink.)
Kotasælubollur
Skraut: Sesam eða hörfræ.
Látið gerið jafnast út í volgri mjólkinni.
Bætið smjöri, salti og sykri út í.
Blandið sesamfræum eða hörfræum, kotasælu og hluta af hveitinu út í.
Hrærið vel.
Stráið hveiti yfir og látið hefast undir klút á hlýjum stað í 30-40 mín.
Sláið deigið niður með sleif.
Hnoðið meira hveiti upp í deigið en ekki öllu í einu þar sem ekki er víst að þörf sé á því öllu.
Hafið deigið það blautt að það rétt losni frá borðinu.
Mótið bollur og setjið þær á smurða bökunarplötu og látið þær hefast undir klút í 15-20 mín.
Penslið bollurnar með sundurslegnu eggi og stráið sesamfræum yfir.
Bakið í u.þ.b. 12 mín. við 225°C.