Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir
Uppskriftir

Gefðu einkunn
(0 eink.)

Senda inn uppskrift

Kardimommubitar








Fylling:








Hráefni fyrir  

Myljið gerið í skál og hellið mjólk yfir og hrærið í þar til gerið hefur jafnast út. Hellið smjörinu saman við. Bætið salti og sykri út í. Blandið helmingnum af hveitinu saman við, og hrærið vel. Stráið hveiti yfir deigið. Breiðið klút yfir skálina og látið deigið hefast á hlýjum stað í 1-1 1/2 klst. Hrærið hveiti saman við deigið en ekki öllu þar sem ekki er víst að þörf sé á því. Hafið deigið frekar blautt, þannig að það rétt losni frá borðinu. Skiptið deiginu í tvennt, og fletjið hvorn hluta út í ferkantaða köku, 65x30 cm. Breiðið 1/4 hluta af smjörinu á helming deigkökunnar langsum. Stráið sykri og kardimommum yfir. Leggið deigið saman í tvennt, langsum. Breiðið 1/4 hluta af smjörinu eftir miðju deiginu, langsum. Stráið sykri og kardimommum yfir. Brjótið deigið í þrennt. Leggið 1/3 hluta af deiginu yfir smjörið og síðan hinn 1/3 hlutann. Skerið lengjuna í bita. Setjið á plötu klædda bökunarpappír. Breiðið klút yfir og látið hefast á hlýjum stað í u.þ.b. 45 mín. Hitið ofninn í 250°C. Penslið með eggi og stráið perlusykri og möndluspónum yfir. Bakið í 7-10 mín.