Ostauppskriftir - Brauð, skyrtertur, forréttir, smáréttir og pizzur | Ostur.is
Gefðu einkunn (0 eink.)
Hunangsbollur
75 g pressuger eða 1/2 msk þurrger.
Blandið saman smjöri , mjólk, saffran og hunangi.
Bætið salti og geri út í.
Hrærið þar til gerið hefur jafnast út.
Setjið helminginn af hveitinu út í, hrærið vel.
Stráið hveiti yfir deigið og látið hefast undir klút á hlýjum stað í 30 mín.
Hnoðið meira hveiti upp í deigið en ekki öllu þar sem ekki er víst að þörf sé á því öllu.
Mótið litlar bollur úr deiginu og raðið á smurða plötu eða plötu klædda bökunarpappír.
Látið þær hefast undir klút í u.þ.b. 25-30 mín.
Penslið þær með eggi og stráið perlusykri yfir.
Bakið við 225°C í 8-10 mín. ofarlega í ofninum.