Blandið saman í hrærivélarskál, mjólk, smjöri og súpudufti grænmetis- eða lauksúpu.
100 g pressuger eða 25 g þurrger.
Leysið gerið upp í vatninu, og blandið í mjólkurblönduna ásamt salti og eggi.
Hrærið 1 1/2 bolla af hveiti og lyftidufti saman við.
Hrærið vel.
Bætið 1 bolla af hveiti í.Hrærið.
Setjið með skeið í smurt hringlaga formkökumót.
Breiðið klút yfir og látið hefast á hlýjum stað í u.þ.b. 1 klst.
Penslið varlega með salatolíu.
Skerið með beittum hníf eða klippið djúpar raufar í deigið með jöfnu millibili, þannig að á milli hverra tveggja raufa sé hæfilegur skammtur af brauði fyrir einn.
Hitið ofninn í 190°C.
Bakið brauðið í 30-35 mín. Kælið örlítið.
Takið brauðið úr forminu og berið það fram vel volgt.
Brjótið brauðið eftir raufunum.