Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir
Uppskriftir

Gefðu einkunn
(0 eink.)

Senda inn uppskrift

Haframjölsbrauð














Hráefni fyrir  

Blandið saman í skál 1 1/4 bolla vatn og haframjöli. Leysið gerið upp í 1/2 bolla af vatni. Bætið sykri, salti ,smjöri og eggjum saman við. Þá haframjöli og hluta af hveitinu u.þ.b. 2 bollum. Stráið hveiti yfir deigið og látið hefast undir klút á hlýjum stað í u.þ.b. 1 -1 1/2 klst. Sláið deigið niður og blandið meira hveiti saman við það en ekki öllu í einu þar sem ekki er víst að þörf sé á því öllu. Hnoðið vel og setjið deigið í 1 stórt eða tvö minni smurð mót. Látið hefast undir klút á hlýjum stað í u.þ.b. 45-60 mín. Penslið deigið með blöndu af eggjahvítu og vatni og stráið haframjöli yfir. Bakið í u.þ.b. 40-45 mín. við 175°C. Látið brauðið standa í mótinu í 15-20 mín. áður en það er tekið úr mótinu.