Ostauppskriftir - Brauð, skyrtertur, forréttir, smáréttir og pizzur | Ostur.is
Gefðu einkunn (0 eink.)
Rúlluterta með rjómamöndlufyllingu
Hitið ofninn í 175°C.
Þeytið egg, sykur, salt og vanilludropa þar til létt og ljóst.
Blandið hveitinu varlega í og að síðustu bræddu smjörinu.
Útbúið skúffu úr bökunarpappír og jafnið deiginu í skúffuna.
Bakið 20-25 mín.
Hvolfið kökunni á þurra diskaþurrku.
Kælið.
Setjið möndlur í blandara í nokkrar mínútur og bætið sykrinum í smátt og smátt.
Bætið hvítunum í smátt og smátt og að lokum safa og hýði.
hrærið í nokkrar mínútur.
Hræran ætti að vera kremuð en ekki og lin.
Blandið varlega saman við þeytta rjómann.
Takið pappírinn af kökunni og smyrjið kreminu yfir kökuna, rúllið henni upp með hjálp diskaþurrkunnar.
Vefjið kökunni í álpappír, síðan í plastpoka og setjið í frost.
Takið úr frosti og látið standa í stofuhita í 3-4 klst.