Hitið ofninn í 175°C.
Stífþeytið hvíturnar og blandið sykri og möndlum varlega saman við.
Teiknið tvo hringi 24 cm í þvermál á bökunarpappír og breiðið deigið út í hringina.
Bakið í 20 mín.
Kælið.
Hrærið smjörið þar til létt og ljóst.
Sigtið saman flórsykur, vanillusykur og kaffiduft, hrærið saman við smjörið.
Hrærið eggjarauðunum í einni í einu og hrærið vel í á milli.
Leggið botnana saman með 1/3 af kreminu, setjið 1/3 ofan á efri botninn og smyrjið hluta af kreminu sem eftir er á hliðar tertunar.
Stráið rifnu súkkulaði yfir kökuna og sprautið því sem eftir er af kreminu á tertuna til skrauts.
Tertan er best vel köld, þannig að kremið sé hart.
Hægt er að setja kökuna alveg tilbúna í frost og láta hana þyðna í kæliskáp eða frysta botna og krem sitt í hvoru lagi.