Setjið bökunarpappír í botninn á klemmuformi 24 sm. í þvermál.
Blandið saman kexmylsnu, hnetum, sykri og smjöri, og þrýstið í botninn á forminu.
Bakið í 10 mín.
til að fá botninn stökkan en þarf ekki.
Kælið.
Leggið matarlímið í bleyti í kalt vatn.
Þeytið egg og sykur þar til létt og ljóst .
Blandið kotasælu, hýði og sítrónusafa saman við eggin.
Kreistið vatnið af matarlímsblöðunum og bræðið þau, blandið þeim saman við hræruna.
Þeytið rjómann og blandið honum varlega saman við hræruna þegar hún fer að þykkna.
Hellið yfir kexbotninn.
Kælið í nokkrar klukkustundir áður en kakan er tekinn úr forminu.
Skreytið með þeyttum rjóma og ferskum berjum.