Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir
Ostauppskriftir - Brauð, skyrtertur, forréttir, smáréttir og pizzur | Ostur.is

Gefðu einkunn
(0 eink.)

Senda inn uppskrift

Karamelluterta með bananakremi












Hráefni fyrir  

Hitið ofninn í 175°C. Sigtið hveiti, lyftiduft og sóda í skál. Myljið hveitið saman við með fingrunum. Bætið sykrinum saman við. Stappið bananana, hrærið múskati, eggi og mjólk saman við. Hrærið saman við hveitið. Setjið í smurt hveitistráð lausbotna form. Bakið í u.þ.b. 40 mín. Kælið lítið eitt í forminu , áður en kakan er kæld á grind. Kljúfið botninn í tvennt. Bræðið sykurinn í karamelluna í litlum þykkbotna potti, þar til vel brúnn. Hellið karamellunni yfir efri botninn og dreifið úr henni með olíubornum hníf. Markið fyrir sneiðunum með hníf áður en karamellan verður of hörð. Hrærið saman rjomaosti, sítrónusafa og sykri. Stappið bananana og blandið þeim í helminginn af rjómaostahrærunni. Leggið botnana saman með bananarjómaostinum. Smyrjið hliðar kökunar með hluta af rjómaostinum, sprautið því sem eftir er til skrauts. Dreifið möndluflögunum á hliðar kökunnar.