Ostauppskriftir - Brauð, skyrtertur, forréttir, smáréttir og pizzur | Ostur.is
Gefðu einkunn (0 eink.)
Kaka frá Sikiley
Þeytið saman eggjarauður, sykur og sítrónuhýði þar til létt og ljóst.
Blandið hveiti og maizenamjöli varlega í með sleikju, þá vatni.
Stífþeytið eggjahvíturnar og blandið þeim varlega saman við deigið.
Hellið deiginu í vel smurt og hveitistráð formkökumót.
Bakið við 175°C í u.þ.b. 45 mín., látið kólna.
Leggið matarlímsblaðið í bleyti.
Setjið kotasæluna í blandara í nokkrar mín.
Þeytið kotasælu, sykur, rjóma og líkjör saman.
Blandið ávöxtum og súkkulaði saman við.
Bræðið matarlímið og blandið því í ostahræruna.
Kælið.
Kljúfið kökuna í fernt.
Leggið hana saman með ostakremi á milli.
Látið standa í kælir í allt að 2 klst.
Bræðið súkku- laðið í kaffinu við vægan hita.
Dragið súkkulaðið af hitanum og hrærið köldu smjörinu saman við smátt og smátt.
Hrærið þar til kremið er létt og glansandi.
Kælið.
Smyrjið kremi yfir alla kökuna og sprautið því sem eftir er til skrauts.
Látið kökuna standa í kæliskáp í u.þ.b.24 klst. áður en hún er borin fram.