Hvítt súkkulaði til skrauts.
Hægt er að nota romm í stað kirsch.
Hititð ofninn í 175°C.
Smyrjið og hveitistráið tvö 26 cm klemmuform að innan.
Deig: Þeytið rauður þar til þær verða léttar og ljósar, bætið sykrinum út í smátt
og smátt. Þeytið vel. Bætið smjörinu út í smátt og smátt, hrærið vel í þar til deigið
verður þykkt og samfellt. Blandið hnetum og möndlum saman við, þá hveiti og dropum.
Gætið þess að hræra ekki of mikið í deiginu. Blandið þeyttum hvítunum varlega saman við með sleikju.
Skiptið deiginu í mótin og bakið neðarlega í ofninum í u.þ.b. 45 mín., takið úr ofninum og látið kólna áður en tekið úr mótunum.
Síróp: Hitið saman vatn og sykur og látið krauma í 20 mín. Blandið víninu saman við og hellið sírópinu yfir kælda botnana.
Krem: Hrærið saman vatn og sykur þar til sykurinn hefur leyst upp, hitið og látið krauma þar til hitastigið er 125°C. Þeytið eggjarauðurnar á meðan, þar til þær eru léttar og ljósar. Hellið heitu sírópinu út í rauðurnar í mjórri bunu og hrærið í allan tímann en ekki á of miklum hraða. Hrærið þar til eggjahræran (,,frostingin)