Hitið ofninn í 200°C.
Fletjið smjördeigið út og skerið út hringlaga köku, 22 cm þvermál.
Setjið í botninn og upp með brúnunum á 19 cm bökumóti.
Geymið utanafskurðinn af deiginu.
Breiðið sultuna yfir deigið í mótinu.
Skerið eplin í þunna báta og veltið upp úr sykur- og kanilblöndu.
Raðið í botninn á mótinu.
Hrærið smjör og sykur þar til létt og ljóst.
Bætið eggjunum í og hrærið vel.
Sigtið saman hveiti, kartöflumjöl og lyftiduft og blandið í hræruna.
Jafnið hrærunni yfir eplin.
Leggið utanafskurðinn af deiginu yfir hræruna og bakið í 30-35 mín.
Hrærið sultu og vatn saman og penslið yfir heita kökuna þegar hún er tekin úr ofninum.
Hrærið saman flórsykur og sítrónusafa og penslið yfir kökuna þegar hún er orðin köld.
Berið kökuna fram með þeyttum rjóma.