Hitið ofninn í 175°C.
Látið kúrenur og rúsínur í sjóðandi vatn og látið sjóða í u.þ.b. 1 mín.
Skolið þær úr köldu rennandi vatni og látið leka vel af þeim.
Setjið þær í skál og blandið smá hveiti saman við þær.
Hrærið smjör og sykur þar til létt og ljóst.
Setjið eggin í eitt í einu og hrærið vel í á milli.
Blandið ávöxtum, kanil, sítrónuhýði, hveiti og lyftidufti út í, og að síðustu koníaki.
Setjið í smurt brauðmylsnustráð formkökumót.
Bakið í u.þ.b. 60-70 mín.
Kælið lítið eitt áður en kakan er tekinn úr mótinu og látinn kólna á bökunargrind.
Látið kökuna bíða í 3-4 daga áður en hún er borin fram.
Geymist vel í einn til tvo mánuði.