Ostauppskriftir - Brauð, skyrtertur, forréttir, smáréttir og pizzur | Ostur.is
Gefðu einkunn (0 eink.)
Djöflakaka
Hitið ofninn í 175°C.
Hitið vatnið og látið súkkulaðið bráðna í því, látið krauma þar til fer að þykkna aðeins.
Kælið örlítið.
Hrærið saman smjör og sykur þar til létt og ljóst.
Bætið eggjunum í einu í einu og hrærið vel í á milli.
Þá vanilludropum.
Hrærið súkkulaðiblöndunni saman við.
Sigtið hveitið saman með sóda, lyftidufti og salti, og blandið í hræruna til skiptis við súrmjólkina.
Setjið í 1 smurt hveitistráð klemmuform 24 sm.í þvermál.
Bakið í u.þ.b. 45-55 mín..
Eða setjið í 3 lausbotna form og bakið í 25-30 mín..
Kælið í forminu.
Ef bakaður er 1 botn þarf að kljúfa hann í þrennt.
Hitið sykur og vatn saman, hrærið í þar til sykurinn hefur leyst upp.
Látið krauma án þess að hræra í þar til hitinn er kominn í 125°C á sykur mælir.
Dragið af hitanum.
Þeytið hvíturnar vel stífar.
Hellið sýrópinu í hvíturnar, þeytið í allan tímann.
Hellið fyrst í dropatali, síðan hraðan.
Bætið vanilludropunum í að síðustu.
Leggið botnana saman með frosting og smyrjið ofan á kökuna og á hliðar hennar.