Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir
Uppskriftir

Gefðu einkunn
(0 eink.)

Senda inn uppskrift

Baltimorekaka











Frostinofylling:










Hráefni fyrir  

Kaka: Hitið ofninn í 175°C. Hrærið saman smjöri og sykri þar til hræran verður létt og ljós. Sigtið saman hveiti, lyftidufti og salti. Blandið saman mjólk. vatni og vanilludropum. Blandið þurrefnum og vökva í smjörhræruna til skiptis. Þeytið eggjahvíturnar þar til sífar en ekki þurrar, og blandið varlega í hræruna með sleikju. Setjið í smurt hveitistráð klemmuform. 26 sm.. Bakið í u.þ.b. 80 mín.. Kælið kökuna og kljúfið hana i þrennt. Frosting: Sjóðið saman vatn, sykur og cream of tartar þar til hitastigið er 115-120°C. Þeytið eggjahvíturnar og hellið heitu sírópinu út í, í dropa tali til að byrja með. Þeytið í á meðan, og í allt að 5 mín., eftir að sírópið er allt komið í. Bætið vanilludropum í. Skiptið hrærunni í tvennt. Blandið gráfíkjum, rúsínum og hnetum í helminginn, og setjið á milli botnana. Smyrjið hinum hlutanum ofan á kökuna og á hliðar hennar.