Hitið ofninn í 175 °C.
Smyrjið og hveitistráið hringlaga formkökumót.
Blandið öllu saman sem í kökuna á að fara nema hnetum.
Hrærið í u.þ.b. 3 mín.
Blandið hnetunum saman við.
Setjið í mótið og bakið í 40-60 mín.
Kælið í forminu í 15 mín.
áður en kakan er tekin úr og kæld á grind.
Glassúr: Blandið saman í pott púðursykri, smjöri og mjólk.
Hitið þar til sykurinn er bráðinn.
Hrærið stöðugt í.
Dragið af hitanum.
Blandið flórsykrinum saman við.
Hellið yfir kökuna og dreifið hnetunum yfir.
12-16 sneiðar.