Ostauppskriftir - Brauð, skyrtertur, forréttir, smáréttir og pizzur | Ostur.is
Gefðu einkunn (0 eink.)
Appelsínuformkaka
Hitið ofninn í 175° C.
Hrærið smjör og sykur þar til létt og ljóst. Hrærið eggjunum í einu í senn og
hrærið vel í á milli. Sigtið saman hveiti og lyftiduft og blandið í smjörhræruna,
ásamt safa og hýði. Setjið í smurt formkökuform. Bakið í 45-60 mín.
Kælið kökuna. Takið úr mótinu.
Hrærið smjör og flórsykur þar til létt og ljóst. Bætið safa og hýði saman við.
Kljúfið kökuna í þrennt eftir endilöngu, og leggið hana saman með smjör-
kreminu. Bræðið smjör og súkkulaði, kælið lítið eitt og setjið yfir kökuna.
Skreytið með möndluflögum.
Kælið kökuna vel áður en hún er skorin í sneiðar.
Þessi kaka geymist vel í frosti.