Ostauppskriftir - Brauð, skyrtertur, forréttir, smáréttir og pizzur | Ostur.is
Gefðu einkunn (0 eink.)
Bláberjabaka
Hitið ofninn í 190°C.
Myljið saman hveiti og smjör, bætið eggi, sykri og salti í.
Bætið vatni í síðast þar sem ekki er víst að þörf sé á því öllu.
Notið bara helminginn af deiginu hinn hlutinn geymist vel í frosti.
Fletjið deigið út og klæðið að innan bökumót eða leggið bökuhring ( flanring ) á plötu klædda bökunarpappír og klæðið með deiginu.
Blandið saman öllu sem í fyllinguna á að fara og setjið í deig skelina.
Blandið saman öllu sem í efralaginu er og stráið yfir fyllinguna.
Bakið í 40-45 mín.
Hægt er að nota hvaða ávexti sem er í stað berja.