Þú ert hér: Forsíða > Tilkynningar
Tilkynningar

Nýr Fjörostur -aðeins 9% feitur  ı   5.06.09


Fyrir skömmu kom á markað nýr fitulítill Fjörostur frá MS. „Með nýrri framleiðslutækni hefur okkur tekist að framleiða brauðost sem inniheldur einungis 9% fitu og er þar með fituminnsti brauðosturinn á markaðnum“, segir Sigurður Rúnar Friðjónsson, mjólkurbússtjóri hjá MS Akureyri sem framleiðir nýja ostinn. „Fjörostur er jafnframt kalkríkur auk þess sem hann inniheldur hátt hlutfall mysupróteina sem eru sérstaklega hentug til vöðvauppbyggingar. Fjörosturinn dregur nafn sitt af Fjörmjólk sem er einstaklega fitulítil en jafnframt próteinrík og er fleiri spennandi vara í Fjörlínunni að vænta á næstu misserum” segir Sigurður Rúnar að lokum.



« Til baka