Roðflettið lúðuflökin og skerið þau í bita.
Afhýðið kartöflurnar og skerið þær í teninga.
Látið leka vel af paprikunni og skerið hana í strimla.
Afhýðið tómat- ana og saxið.
Blandið salti og pipar í hveitið og veltið lúðubitunum upp úr því.
Bræðið helminginn af smjörinu í stórri og þykkbotna pönnu.
Steikið fiskinn í 10 mín.
, og snúið nokkrum sinnum.
Takið fiskinn af pönnunni.
Bræðið það sem eftir er af smjörinu.
Látið lauk og hvítlauk krauma í smjörinu í 5 mín.
, bætið þá kartöflunum og helm- ingnum af paprikustrimlunum út í og látið krauma í 5 mín.
, takið allt af pönnunni og setjið í eldfast mót.
Setjið tómatana á pönnuna ásamt ediki, víni, soði, lárviðar- laufi, salti og pipar.
Látið suðuna koma upp.
Hellið af pönnunni yfir kartöflublönduna , setjið lok yfir eða álpappír og setjið í 180°C.
heitan ofn í 30 mín..
Takið mótið út úr ofninum og blandið fiskinum varlega saman við.
Setjið lokið aftur á og bakið í 20 mín..
Smakkið sósuna til áður en rétturinn er borinn fram.
Skreytið með paprikustrimlunum sem eftir eru.
Stráið parmesanosti yfir og þar yfir raðið harðsoðnum eggja- bátum eða sneiðum.
Berið fram á djúpum diskum.
Berið fram með löngu brauði og smjöri.