Ostadagar 2006
29. september til 1. október
Vetrargarðinum í Smáralind
Ostadagar er vörusýning á vegum fyritækisins, haldin annað hvert ár. Ostadagar 2006 var tólfta sýningin en sú fyrsta var haldin árið 1983. Sýningin hefur orðið stærri og glæsilegri með hverju árinu og nú er svo komið að það dugar ekki minni staður en Vetrargarðurinn í Smáralind. Sýningin var haldin þar nú öðru sinni.
Tilgangur Ostadaga er tvíþættur. Sýningin er tengd við Íslandsmeistarakeppni í Ostagerð og verðlaunaostarnir og dómar um þá er stillt upp. Ostadagar eru því uppskeruhátíð ostameistaranna í landinu. Hins vegar er tilgangurinn að hitta ostaneytendur, gefa þeim tækifæri á að kynnast úrvali íslenskra osta, bragða á þeim og segja álit sitt. Einnig gefst þarna gott tækifæri fyrir neytendur að ræða við ostameistara mjólkursamlaganna og fræðast meira um ostagerð og vörurnar. Á Ostadögum hefur ávallt skapast mikil nánd við neytendur og það skilar sér síðan í framhaldi inn í vöruþróun og uppbyggingu fyrirtækisins.