Þú ert hér: Forsíða > Um okkur > Gæðastefna
Gæðastefna
Mjólkursamsalan einsetur sér að sjá neytendum fyrir ostum og viðbiti í fjölbreyttu úrvali og í hæsta gæðaflokki. Stefnt skal að settu marki með því að efla eftirfarandi:
Samkeppnishæfni íslenskra osta og viðbits. 
Fjölbreytt vöruúrval með ferska ímynd í fallegum og snyrtilegum umbúðum, góð þjónusta, vara sem stenst samjöfnuð við það besta á alþjóðlegum mörkuðum og á verði sem markaðurinn sættir sig við.
Gæði íslenskra osta og smjörvara.
Alltaf sé hægt að treysta þeirri vöru sem á boðstólum er hverju sinni og þjónustu.  Að stöðlum sé fylgt og að upplýsingamiðlun sé samkvæmt bestu vitneskju á hverjum tíma.
Eigin hæfni. 
-Gæði byggi á styrkum innviðum fyrirtækisins sem inniber starfshætti, þekkingu, hraða upplýsingaöflun, gæðastjórnunarkerfi (ISO - 9002) með öflugu innra eftirliti og stöðugum umbótum og góðan starfsanda.
-Samstarf við birgja felst í því að koma markaðsviðhorfum til skila, þar sem afurðastöðvar í mjólkuriðnaði og mjólkurframleiðendur vinni að því að uppfylla að staðaldri gæðakröfur og endurskoða þær sífellt með hliðsjón af markaðskröfum innanlands og í helstu samkeppnislöndum.
Umhverfið. 
Starfsemi fyrirtækisins taki tillit til umhverfissjónarmiða.
Einkunnarorð;
Íslensk gæði - frá bónda að borði !.

ISO 9002

Gæðastjórnunarkerfið er samkvæmt staðlinum ISO 9002 og var staðfest af Vottun hf., 25. ágúst 1994, þegar fyrirtækið hér Osta- og Smjörsalan. Vottorðið tekur til sölu, dreifingar og pökkunar á ostum og viðbiti, auk framleiðslu, sölu og dreifingar á bræddum ostum, ostabökum og ostakökum.
ISO 9002 er alþjóðlega viðurkennt gæðastjórnunarkerfi og var það ein meginástæða þess að kerfið var tekið upp hjá fyrirtækinu en ekki önnur viðurkennd gæðakerfi. Fyrirtækið vildi auk þess taka forystu í sinni grein hér á landi, þ.e. framleiðslu matvæla úr landbúnaðarafurðum og sýna fram á að það stæði jafnfætis helstu samkeppnislöndum í gæðamálum. ISO staðlarnir gera kröfur um skipulag forvarna og utanaðkomandi viðurkenndir aðilar koma reglubundið í fyrirtækið til að staðfesta virkni þess og að það vinni í samræmi við staðlana. Mjólkursamsalan er því stöðugt að vinna að úrbótum innan fyrirtækisins, auknu öryggi, fækkun mistaka og bættum starfsháttum og skipulagi. Neytendakvartanir, vörufrábrigði og þjónustukvartanir eru m.a. notaðar sem uppsprettur úrbótaverkefna.
 
GÁMES
3. janúar 1997 staðfesti Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur GÁMES (HACCP) gæðaeftirlitskerfi Osta- og smjörsölunnar, nú Mjólkursamsölunnar ehf. en kerfið á að tryggja gæði, hollustu og öryggi vörunnar á öllum stigum allt frá framleiðslu til afhendingar. Markmiðið með kerfinu er að meta þá áhættu sem er til staðar í framleiðsluferlinu og koma á fyrirbyggjandi aðgerðum. Þannig er komið í veg fyrir galla eða mistök strax en ekki leitað að þeim eftir á.