Ertu með spurningu sem þig vantar svar við í tengslum við osta og viðbit?
Þér er velkomið að senda til okkar spurningar og við munum gera okkar besta í að senda þér svör við þeim
Hér gefur að líta nokkrar spurningar sem við höfum m.a. fengið frá viðskiptavinum.
Hvers vegna er smjör mismunandi á litinn?
Árstíðamunur er á smjöri, það er ljóst á vetrum en gulara á sumrin. Það er vegna þess að á sumrin eykst karótín sem er litarefni í grasinu.
Hvers vegna er ostur sömu gerðar ekki eins á litinn?
Þetta er árstíðamunur. Ostur er gulari á sumrin en hvítari á vetrum vegna mismikils karótíninnihalds. Karótín er algengt litarefni í grænmeti og plöntum. Það finnst í grasi á sumrin.
Má frysta smjör og ost?
Já – en með undantekningum þó.
Fastur ostur hefur gott geymsluþol og því ætti að vera óþarfi að frysta hann. Fastir ostar vilja þó oft molna eftir frystingu og erfitt getur verið að sneiða þá. Tilvalið er að frysta rifinn ost til síðari tíma og nota í heita rétti. molnaBest er að þíða osta í einn sólarhring í kæliskáp.
Ost með 26% fituhlutfall og þar yfir má frysta með góðum árangri.
Smjör má geyma í frysti í nokkra mánuði án þess að teljandi munur finnist á bragðgæðum.
Má frysta mygluosta?
Já, alla mygluosta má frysta. Gæta skal þess að þeir hafi náð æskilegu þroskastigi áður þar sem þeir þroskast sjaldnast eftir frystingu. Best er að láta ostinn þiðna í kæliskáp í einn dag en annars í 6–8 tíma við stofuhita. Geymsluþol hans er þá styttra en geymsluþol osts sem hefur aldrei frosið.
Hvort er betra að bræða rifinn eða sneiddan ost?
Best er að nota rifinn ost.
Eru fastir ostar ónýtir ef á þeim myndast myglublettir?
Nei, alls ekki. Ostur er lifandi og því fullkomlega eðlilegt að hann fái slíka bletti við lengri geymslu. Blettirnir eru eingöngu á yfirborðinu og nægir að skera þá frá.
Hvernig á að lesa úr innihaldslýsingum
Í innihaldslýsingu á umbúðum getur þú séð úr hvaða hráefnum varan er samsett í röð eftir þyngd (það sem vegur þyngst í innihaldi er nefnt fyrst og þannig koll af kolli). Næringarinnihald er einnig gefið upp og er ævinlega miðað við fjölda gramma af viðkomandi næringarefni í 100 grömmum af vörunni (%). Stundum kemur fram hvaða hlutfall það er af ráðlögðum dagskammti (% RDS).
Hvaða næringarefni eru í ostinum?
Hvernig er best að geyma ost?
Ostur og smjör eru kælivörur. Geymsluhitastig í kæliborði á ekki að fara yfir 4°C. Hafðu ávallt hitamæli í kæliborðum verslunarinnar. Þá geturðu fylgst með að hitastigið sé rétt og tryggt þig þannig gegn kostnaðarsömum óhöppum. Það eflir einnig traust viðskiptavinarins á versluninni.
Hvert er geymsluþol osta?
Neytendapakkaðir, bitapakkaðir og sneiddir ostar hafa takmarkað geymsluþol eftir að búið er að opna loftskiptu umbúðirnar. Þær auka geymsluþol ostsins um leið og þær vernda bragðgæði og áferð. Mygluostar eru næmari fyrir hita og hitasveiflum en fastir ostar. Þeir hafa takmarkað geymsluþol eftir að þeir eru fullgerðir. Smurostar í lokuðum umbúðum geymast lengi. Eftir að umbúðirnar hafa verið opnaðar fer geymsluþolið eftir meðferð ostsins. Mysuostar hafa gott geymsluþol í óopnuðum umbúðum.
Hvernig skal geyma bragðsterka osta?
Nauðsynlegt er að geyma þá í þéttum umbúðum til þess að hið sterka bragð komist ekki í önnur matvæli.
Hvernig er best að meðhöndla heila osta?
Heila osta má geyma í nokkrar vikur í umbúðum söluaðila. Gættu þess að skaða ekki skorpu eða plasthimnu. Eftir skurð er best að láta ostinn í þéttar plastumbúðir.
Hvað ber að varast við geymslu á ostum?
Geymið ekki ost í námunda við:
. óinnpakkað grænmeti
. lyktsterka ávexti (t.d. appelsínur)
. reykt matvæli
. bragðmikil matvæli (t.d. síld og hákarl)
. lyktsterk efni (t.d. sápu)
Ostur getur auðveldlega tekið í sig bragð af þessum vörum.
Hvað skal gera við myglu?
Mygla þrífst vel í osti. Hún vex þó einungis á yfirborðinu þar sem loft og raki eru fyrir hendi. Óboðin mygla er höfuðóvinur ostsins ásamt þornun. Helstu varnir eru vaxskorpa og góðar umbúðir. Í rauninni hefur mygla þó sjaldnast teljandi áhrif á gæði ostsins og nægir að þvo hana af ostinum með hreinum, rökum klút eða skera hana frá.
Hvernig er best að geyma smjör og smjörva?
Best er að geyma þessar vörur í kæli við 0–4°C. Þó má geyma smjör við hærra hitastig í heimahúsum í stutta stund áður en þess er neytt. Auðveldast er að smyrja smjöri þegar hitastig þess er um 14°C.
Hvernig er best að geyma Létt og laggott?
Þessar vörur hafa minna geymsluþol og eru viðkvæmari en smjör og smjörvi. Þær geymast best við 0–4°C. Athugaðu að þegar álþynnan í dósinni er lögð þétt að viðbitinu eftir hverja notkun verndar hún gæði þess og geymsluþolið verður meira. Þetta á við um allar tegundir viðbits.
Hvað hafa loftskiptar umbúðir fram yfir lofttæmdar?
Í loftskiptu umbúðunum er örlítið loft, þær fara betur með ostinn þar sem þær falla ekki alveg að honum og osturinn nær að þroskast eðlilega í þeim. Ef annar endi umbúðanna er opnaður með skærum er hægt að nota þær áfram.
Sendu okkur póst