Ostar hafa náð miklum vinsældum, bæði sem hluti af máltíð og sem sjáfstæðir réttir, auk þess sem þeir eru mikið notaði í matargerð. Ostabakkar eru einnig vinsælir en hafa ætti í huga að ekki er alltaf best að hafa marga osta á ostabökkum, færri virka oft betur. Flestum kemur rauðvín í hug þegar velja á vín með ostum og má eflaust rekja það til þess að ostar koma oft á eftir aðalréttinum en á undan ábætisréttinum og er þá gjarnan rauðvín í glösunum. Hvítvín eru ekki síðri með ostum og í sumum tilvikum jafnvel betri en rauðvín. Sjaldgæft er að vín og ostar fari illa saman. Þó hentar hvítvín með miklum eikarkeim almennt ekki vel með ostum og sömuleiðis eru rauðvín með miklum tannínum, kryddi og kröftugum ávexti ekki alltaf heppileg.

Ostar geta verið lítið eða mikið þroskaðir og verða þeir bragðmeiri eftir því sem þeir eru þroskaðri. Ostar sem eru á réttu þroskastigi falla betur að víninu en óþroskaðir. Það er því gott að kaupa ostana tímalega og neyta þeirra áður en þeir verða of þroskaðir. Ostar innihalda sýru, salt og fitu og allt hefur þetta áhrif á vínvalið, auk þess sem bragðkrafturinn hefur mikið að segja.
Ferskir geitaostar, sem eru sýruríkir, þurfa sýrurík vín og bragðsterkir ostar þurfa bragðmikil vín. Saltir ostar, eins og blámygluostar, fara vel með sætum vínum. Besta pörunin er þegar bæði vínið og osturinn halda bragðeinkennum sínum, ef samsetningin dregur það besta fram í hvoru tveggja þá erþ að aukabónus.
ÁTVR hélt Ostadaga í september 2008 í samstarfi við Mjólkursamsöluna, í kjölfarið var gefinn út lítill bæklingur, Ostaveisla, með fróðleik um vín og osta og nokkrum skemmtilegum uppskriftum.
Bæklingin er hægt að nálgast hér á tölvutæku formi