Hvernig er smjör búið til?
Smjör er hrein náttúruafurð, gerð úr rjóma. Bullustrokkar voru notaðir við strokkun smjörs á íslenskum heimilum frá landnámi fram á síðustu öld. Nútímaaðferðin er þannig að rjóminn fer í stóra stálstrokka sem snúa honum á miklum hraða þar til fitukúlur hans verða að litlum smjörkornum og áfirnar skiljast frá. Smjörkornin eru hnoðuð hægt saman og þar með er smjörið orðið til.
Hvernig er smjörvi búinn til?
Smjörvi er búinn til eins og smjör nema sojaolíu er blandað í rjómann áður en strokkun hefst.
Hvernig er Létt og laggott búið til?
Létt og laggott eru fituskertar vörur. Framleiðsluferlið er örlítið flóknara en við smjörstrokkun og innihaldið er smjör, fitulaus mjólkurprótein unnin úr undanrennu, sojaolía og salt.