Það sem má hafa í huga þegar ostabakki er settur saman:
Á ostabakka er ekki þörf á fleiri en fimm tegundum af osti. Með ostinum er gott að hafa ávexti, grænmeti og brauð eða ósætt og ósalt kex.
Gott er að láta ost standa við stofuhita í u.þ.b. 1 klst áður en hann er borinn fram, til þess að ostabragðið njóti sín sem best. Gættu þess að hafa meira af mildum ostum en sterkum. Allan ost má skera niður daginnn fyrir notkun og geyma vel innpakkaðann í ál- eða plastþynnu í kæli.
Þegar bornir eru fram ostar ásamt smjöri , brauði, ávöxtum og grænmeti og osturinn er aðalatriðið þá er gert ráð fyrir 200-250 grömmum af osti á mann.
Ef osturinn er borinn fram sem ábætir er passlegt að reikna með u.þ.b 70-75 grömmum á mann. Ef ostur er á borðum með öðrum réttum, til dæmis í hádegis eða morgunmat er gert ráð fyrir 75-100 grömmum á mann.
Meðlæti á ostabakkann
Sulta og vínber eru eitt vinsælasta meðlætið á ostabakkann en dæmi um annað meðlæti sem gott er að hafa með er eftirfarandi: Epli, þurrkaðir ávextir, sellerí, hnetur, chutney, pickles, hunang, púrtvínssoðnar perur, sérrí og rúsínuhlaup, síróp, chilli sulta, ólífur, grillaðar paprikur, sólþurrkaðir tómatar, ætiþistlar og margt fleira.
Ostapinnar:
Gera má ráð fyrir 10-12 pinnum á mann í 2 klukkustunda boði. Hægt er að nota hvaða föstu osta sem er.