Almennar upplýsingar um viðbit
Smjör
Ekkert jafnast á við smjör, hvorki í bakstri né við steikingu eða aðra matargerð. Smjörbragðið á sér enga hliðstæðu og engar smjöreftir-líkingar ná gæðum þess. Smjörlíki inniheldur sama magn fitu og smjör en bragðgæðin eru ekki þau sömu. Geymdu smjör í kæliskáp í vel lokuðum umbúðum.
Smjörvi
Smjörvinn er bragðgóður og mjúkur beint úr kæliskáp. Góður til að smyrja með og baka úr. Lítill bragðmunur er á smjöri og smjörva.
Smjörvinn samanstendur af 4/5 hlutum smjörs og 1/5 hluta sojaolíu. Jafnmargar hitaeiningar eru í smjöri og smjörva.
Létt og laggott
Létt og laggott er líkt og smjör á bragðið, en með tiltölulega hátt próteininnihald. Létt og laggott er helmingi fituminna viðbit en smjör og smjörvi. Létt og laggott er ætlað ofan á brauð en hentar ekki til matargerðar. Létt og laggott er fersk vara sem bragðast best innan tveggja vikna frá því að askjan er opnuð.