Þú ert hér: Forsíða > Fræðsluhornið > Almennar upplýsingar um osta
Almennar upplýsingar um osta
Almennar upplýsingar um osta
 
Ostar
Fastir ostar eru mest notaðir í sneiðum sem álegg og rifnir í ofnrétti.
Smurostar eru girnilegt álegg og gefa súpum og sósum bragð og fyllingu.
Hreinn rjómaostur er mest notaður í bakstur og matargerð en rjómaostar með bragðefnum eru mest notaðir beint úr dósinni sem álegg. Hann er tilvalinn sem fylling, t.d. í vatnsdeigsbollur og bakaðar kartöflur.
Mygluostar (blá- og hvítmygluostar) eru mest notaðir eins og þeir koma fyrir, t.d. á ostabakka.
Ábætisostar (papriku-, pipar-, hvítlauks-, pepperoni- og mexíkóostar) eru steyptir lúxusostar, góðir á ostabakka og heppilegir í sósur, súpur og fondue því þeir jafnast alveg út í heitum vökva.
Gráðaostur er blámygluostur sem er góður í sósur, ídýfur og ofnrétti og ómissandi á ostabakka.
Mysuostar eru mest notaðir sem álegg en eru einnig góðir í sósur og súpur.
Kotasæla hrein eða bragðbætt er góð ein sér eða sem álegg og með grænmeti eða ávöxtum, passar vel í salöt og salatsósur, í bökudeig, hverskyns brauðbakstur og eftirrétti.