Þú ert hér: Forsíða > Fræðsluhornið
Fræðsluhornið
Áhugi á matargerð er mikill og sífellt stækkar sá hópur fólks sem hefur gaman af að þekkja þær vörur sem þeir neyta ofan í kjölinn, þ.e. uppruna þeirra, framleiðsluferli, meðferð, hvaða möguleika varan býður upp á og svo framvegis. Matargerð á Íslandi hefur tekið stökkbreytingum síðustu ár og hefur úrval í verslunum aukist til muna samhliða þessari breytingu.

Hér verður leitast við að birta ýmislegt fræðsluefni um osta, smjör og viðbit,  svo og almennar upplýsingar um matargerð ætlað áhugafólki sem og fagfólki.